Smá Sögulegt Rýni

 

Ég verð að segja að mér finnst þessi múndering hin furðulegasti klæðnaður. Reyndar er hann vel hannaður og alls ekki ljótur og nafnið, búrkíni, er virkilega vel heppnað. En vissulega eru ávallt til manneskjur sem tengja þetta algjörlega við kvennakúgun og uppgang "Íslamisma". Vissulega eru þessi trúarbrögð afturhaldssöm en í kjarnanum eru þau það öll. Hversu íhaldssöm voru vesturlönd fyrir svosem öld í þessum málefnum? Lítum á dæmi:

  burkini230607mos-468x810

                                Búrkini 

 

388px-PostcardTwoWomenBathingSuitsC1907

                               Nýjasta sundfatatíska árið 1907 í Bandaríkjunum

 

 Agalega mikill munur? Ekki finnst mér það.


mbl.is Sala á strandklæðnaði fyrir múslimskar konur rýkur upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært Framtak!

Ég verð bara að segja að ég er stoltur af vantrú fyrir þennan gjörning. Auðvitað er verið að gera grín að valda- og peningagræðgi presta þjóðkirkjunnar en þeir hafa lítið tekið eftir því þegar Jesús sagði að það væri auðveldara fyrir úlfalda að komast í gegnum nálarauga en ríkan mann til himnaríkis.


mbl.is Svarthöfði á vegum félagsmanna í Vantrú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábærar Fréttir!

Það er gleðiefni að sjá Sjálfstæðisflokkinn missa loksins fylgi en samkvæmt þessari könnun eru þeir með 33% á landsvísu og 27% í borginni. Loksins byrjað að skolast af þeim fylgið fyrir mistök seinustu mánaða (og ára) og mér finnst þetta m.a.s. vera heldur mikið fylgi! Það þýðir hvorki meira né minna en að þeir myndu missa þrjá borgarfulltrúa af sjö í borginni og fjóra þingmenn!

 

Við í Vinstri Grænum erum að mælast með fínt fylgi og myndum bæta við okkur borgarfulltrúa og fimm þingmönnum ef kosið yrði nú. Það er þreföldun þingmanna okkar á aðeins tveim kjörtímabilum!

 

Síðan er eitt í þessari könnun sem ég tel sérlega gott og það er að tveir þriðju svara könnuninni um fylgið í borginni en það er 7% meira en í febrúar.

 

 

burtXD

 

 


mbl.is Fylgi stjórnarflokka eykst en fylgi ríkisstjórnar minnkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tók Sjálfstæðisflokkurinn Hann í Kennslustund?

 

Það fyrsta sem ég sá fyrir mér þegar ég las þess frétt var hann Bruce Bjarnason, stórhneykslaður að tala um jafnréttisbaráttu sem "barn síns tíma". Aðrir sjálfstæðismenn á borð við Árna Matt, Geir Haarde og að ógleymdum honum Villa Villta fylgja svo í kjölfarið. Sá flokkur er löngu orðinn ódrepandi (eða heyrnarlaus?) þegar kemur að lýðræðislegri gagnrýni og því spyr ég; Hefur hann Olmert kannski farið á námskeið í Valhöll?

 

c_documents_and_settings_hei_run_my_documents_landssamband_sjalfstae_iskvenna_my_pictures_dead_handsome_as_always


mbl.is Ætlar ekki að segja af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kodd'í sleik!

koddisleikweb1

Sérðu einhver líkindi?

 

Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, lýsti í morgun yfir hryggð sinni vegna dauða móður og fjögurra ungra barna hennar er hernaðaraðgerðir Ísraelshers stóðu yfir á Gasasvæðinu í gær. Hann  sagði ábyrgðina þóalfarið liggja hjá Hamas-samtökunum sem stofni óbreyttum borgurum í hættu með hernaðarumsvifum sínum á meðal óbreyttra borgara og geri þá þannig að þátttakendum í átökum.

 

Adolf Hitler, Kanslari Stór-Þýskalands, lýsti í morgun yfir hryggð sinni vegna dauða móður og fjögurra ungra barna hennar er hernaðaraðgerðir þýska hersins stóðu yfir á Britanny skaganum í gær. Hann sagði ábyrgðina þó alfarið liggja hjá Andspyrnuhreyfingu Frakka sem stofni óbreyttum borgurum í hættu með hernaðarumsvifum sínum á meðal óbreyttra borgara og geri þá þannig að þátttakendum í átökum.

 

Nei, ég er ekki að segja að Ísrael sé Þriðja ríkið endurfætt. Ég veit alveg að margir Ísraelar eru friðelskandi og á móti þessari ofbeldisfullu stefnu sem að ríkisstjórnin stendur fyrir. Ég veit líka að hvorugir aðilar eru saklausir hvað varðar voðaverk þótt  verk Palestínumanna blikni við hliðina á Ísraelum. Ég er bara að sýna fram á hversu absúrd hugsunarháttur landtökumannanna er og hvað sagan fer oft í hringi.

 

 

 

Hamas eyða 10% af sínum útgjöldum í hernaðarmál, hitt fer í skóla, sjúkrahús og ýmsar hjálparstofnanir. Þeir búa til grunnstoðir ríkis vegna þess að hinn spillti Fatah-flokkur hefur engan áhuga á því. Þeir ræna bara einfaldlega völdum og leika sér sem leppar Vesturlanda. Þess vegna fylkir fólk sér á bakvið Hamas, þeir útvega fólki grunnstoðir og berjast gegn kúgun landtökumanna.

 

Það sem þarf að gera er að koma trúarbrögðunum útúr þessari deilu. Þegar að harðlínu bókstafstrúargyðingar hætta að flæða yfir lönd Palestínumanna og ógna þeim minnka umsvif bókstafstrúarmanna Múslima sem að nærast á eymd þjóðarinnar. Svo einfalt er það. 


mbl.is Olmert vísar allri ábyrgð á Hamas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af frjálshyggjupésum og öðru eins rugli.

Samfylkingin gerði hræðileg mistök þegar þeir gáfu heilbrigðisráðuneytið eftir við ráðherraskiptinguna seinasta vor. Reyndar höfðu sjálfstæðismenn lagt mikla áherslu á að hrifsa þetta embætti til sín ef þeir kæmust í ríkisstjórn svo að maður sá þetta ástand svosem fyrir, niðurskurðir og fjöldauppsagnir.

 

Er þetta það sem að við viljum fá? Einhverja frjálshyggjupésa sem að finnst ekkert sjálfsagðara en að rífa niður árangur þjóðarinnar í heilbrigðismálum síðastliðna öld og dreifa honum á milli vina sinna? Heilsuverndarmiðstöðin ehf. á greinilega eftir að verða gullnáma með sína velferðalínu og 20% afslátt til gullkortshafa Kaupþings. Einkarekstur ríkisstjórnarinnar virðist vera lítið annað en jarðvegur fyrir rándýra einkaspítala ef maður lítur á þessa fjöldauppsagnir og niðurskurði. Eða er þetta bara furðuleg tilviljun að þetta gerist allt á sama tíma?


mbl.is Algjör pattstaða – engir fundir og uppsagnir standa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi Maður á Enga Virðingu Skylda!

Bnedikt (sic) XVI. er allt annað en góður maður. Áður en hann varð páfi var hann yfir deild kaþólsku kirkjunnar sem nefnist Congregation for the Doctrine of the Faith eða einfaldlega CDF. Þessi deild kirkjunnar sér um að kaþólskir söfnuðir heimsins stundi "rétta" trú og breiði út áróður kirkjunnar gegn smokkum, fóstureyðingum og þvíumlíku.

 

Þegar að áralöng misnotkun gegn börnum fyrir hendi kaþólskra presta komst í dagsljósið var reynt eftir fremsta megni að komast í gögn kirkjunnar um þessi málefni. Benedikt tók sig þá til, bannaði öllum prestum að upplýsa neitt um þessi gögn og hótaði þeim m.a.s. útskúfun úr kirkjunni ef þeir hlýddu ekki! Á hans valdatíma breiddi CDF yfir fjölmörg kynferðisbrot presta gegn börnum m.a. með því að færa presta úr sókninni þar sem þeir frömdu brotin eitthvert annað. Þegar átti svo að kæra hann í Bandaríkjunum fyrir þetta bað hann einfaldlega George Bush um að lýsa sig friðhelgan mann!

 

En vitiði hvað? Þetta er allt í fínasta lagi því að hann bað fyrir börnunum sem að urðu fyrir þessari misnotkun! Þannig að þetta er því útrætt frá hans hendi! Haltu endilega áfram að biðja fyrir öllum þeim sem að brjóta af sér. kannski þurfum við bara ekkert á dómum að halda í framtíðinni ef hann heldur svona áfram!

 

mehh


mbl.is Benedikt XVI páfi veitti íslendingum postullega blessun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þýðir það eitthvað að hvetja sjálfa sig?

Seinast þegar að ég vissi var Samfylkingin í ríkisstjórn þannig að ég veit ekki hversu mikið það gagnast þeim að biðja sjálfa sig um hluti sem að þeir voru búnir að lofa fyrir seinustu kosningar. Samfylkingin lagði á lokasprettinum mikla áherslu á Fagra Ísland og þessa rammaáætlun sína og má hugsanlega telja þetta framspil þeirra ástæðu fyrir því af hverju fylgishruninu sem blasti við þeim var afstýrt.

 

   En hvað sjáum við í dag? Borgarstjórinn í Reykjanesbæ ræður sér ekki fyrir kæti og byrjar að grufla í sandkassanum með skóflunni þótt honum vanti bæði fötu og leyfi frá fóstrunum, ríkisstjórnin veit ekkert í sinn haus hvað varðar Húsavík og stóriðju þar og Þorlákshöfn er eitt stórt spurningamerki.

 

Af hverju fást engar niðurstöður frá ríkisstjórninni? Og ég sem hélt að óvissa væri versti vinur stöðugs hagkerfis?

 

 


mbl.is Græn skilaboð flokksstjórnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Subbuleg Efnahagsstjórn

Það er ástæða fyrir því af hverju einungis 19% bandaríkjamanna styðja þennan mann með sínum glötuðu stefnum í efnahagsmálum. Hann er búinn að rífa upp það litla velferðarkerfi sam var til þarna með rótum, hægja á þjóðarframleiðslu og stóraukið skuldir þjóðarbúsins.

 

Hér fyrir neðan er frábær fyrirlestur með Stiglitz þar sem hann fjallar m.a. um vandamál alþjóðavæðingarinnar og gróðurhúsaáhrif. Hann fékk mig allaveganna á sporið með að fara í hagfræði í HÍ!

 


mbl.is Kann að verða mesta kreppa í aldarfjórðung
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband